Jæja þá er komið að því fyrsta foreldrakvöldið er á morgun. Ég og Bryndís förum og hlustum á fyrirlestur á dönsku (sem að er nú kannski bara hollt uppá dönskuna að gera) um það hvernig við eigum að haga okkur sem foreldrar. Ég held nú að mér veiti ekkert af því. Þetta er að kicka inn þessa dagana það er farið að sjá á Bryndísi þannig að raunveruleikinn yfir þessu öllu saman er einhvernmegin miklu meiri og mér finnst þetta allt saman vera mjög jákvætt


Ég og Bryndís fórum til Aarhus um síðustu helgi að heimsækja Elvar og Ósk. Það var mjög gaman að sjá hvernig lífið er þarna hjá þeim, ég gef þeim mitt samþykki þetta lítur mjög vel út og þeim virðist líða mjög vel þarna. Við skoðuðum bæinn á laugardeginum, mjög fallegur bær, svo elduðum við góðan mat um kvöldið og tókum Ögmundarvist. Ögmundarvistin fer um víðan völl. Þeim fannst mjög gaman að læra þetta frábæra spil og ætla að kenna spilafélugum sínum í Aarhus það. Á sunnudeginum skoðuðum við svo „Den gamle by“ sem að er mjög svipað Árbæjarsafninu á Íslandi, það var virkilega gaman að sjá það. Það eina slæma við ferðina var lestarferðin, Aarhus er full langt í burtu.
Bryndís byrjaði svo í skólanum núna á mánudaginn og mér sýnist á öllu að henni lítist mjög vel á önnina framundann. Hún er staðráðin í því að kynnast dönum og náði að skella sér í danska groupu í skólanum, þannig að nú fer hún vonandi að geta æft sig meira í að tala dönsku í skólanum.
Ég er enn atvinnulaus þetta er farið að vera létt pirrandi ég sæki um vinnur út um allt og annaðhvort er ég ekki með næga reynslu, ekki nógu góður í dönsku eða með of mikla menntun. En það fer nú vonandi eithvað að ske núna maður er með nokkur járn í eldinum. Svo er ég að byrja að sækja um í skólum fyrir næsta haust, ég ætla að sækja um í CBS og í Kaupmannarhafnar Háskóla, langar frekar í CBS en það er alltaf gott að hafa plan B.
Nú er stefnan sett á að flytja og þá helst nær bænum og í eittvað sem er aðins ódýrara. Við sóttum um á Kollige um daginn sem að heitir Solbakken. Stefán, Marsí og Hrafnkell bjuggu þar fyrir nokkrum árum síðan, þannig að draumurinn er að komast í sömu íbúð og þau voru í 
Annars er allt gott að frétta af okkur, öllum líður vel og eru hressir. Bið að heilsa öllum og þakka fyrir öll commentin.
Kveðja JJ